Guðsþjónusta sunnudaginn 20. febrúar kl. 14:00 Konudagurinn

Guðsþjónustan er tileinkuð konudeginum og verður fjallað um mismunandi hlutverk kvenna.
Séra Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Anna Hulda og Anna Sigga verða með hugleiðingar.
 
Tónlistina leiða Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Aðalheiður Þorsteinsdóttir orgelleikari ásamt kór Fríkirkjunnar.
Fermingarbörn og fjölskyldur þeirra eru hvött til að taka þátt í guðsþjónustunni.
 
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur, leiki og sögu.
Biblíusaga dagsins er sagan um Samversku konuna við brunninn. Sagan kennir okkur um mikilvægi jafnréttis og virðingar fyrir öllum.
 
Verið öll hjartanlega velkomin!