ÁGÚST 2017

13. ágúst sun. kl. 14 Fjölskyldu- og fermingarmessa sunnudaginn 13. ágúst
Fyrsta guðsþjónusta eftir sumarfrí.
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina þar sem ungur drengur Sindri Freyr Jónsson mun fermast.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Fermingarbörn sem fermast munu árið 2018 eru hvött til að mæta ásamt fjölskyldum sínum þar sem stundin markar upphaf fermingarfræðslu Fríkirkjunnar þetta haust.
17. ágúst fim. kl. 20 Kammertónleikar á tónlistarhátíðinni Ung Nordisk Musik.
18. ágúst fös. kl. 20 Tónleikar, hljómsveitin Berg
Dansk-íslenskur jazzkvartett
19. ágúst lau. kl. 21 Tímalausir textar við Tjörnina!
Komdu fagnandi í Fríkirkjuna á Menningarnótt 19. ágúst kl 21:00.
Guðrún Gunnars, Gunnar Gunnarsson og Þorgrímur Jónsson bjóða til kirkju og klukkutíma tónleika þar sem þau flytja uppáhaldslög úr ýmsum áttum.
Ljóðin eru tímalaus og fjalla um ástina og lífið og sr. Hjörtur Magni Jóhannsson les texta og hugleiðir út frá efninu.
Allir velkomnir
20. ágúst sun. kl. 14 Fjölskylduguðsþjónusta
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina.                                                                      Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
27. ágúst sun. kl. 14 Guðsþjónusta
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir stundina.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.