VALDIMAR – Útgáfutónleikar laugardagskvöldið 27. nóvember kl. 21:00
Út er komin frumraun hljómsveitarinnar Valdimar, platan Undraland. Óhætt er að fullyrða að flestallir sem mætt hafa á tónleika með þessari frábæru sveit hafi beðið óþreyjufullir eftir gripnum. Hljómsveitin unga hefur heillað alla sem mætt hafa á tónleika með þeim og varð fulltrúi Geimsteins þar engin undantekning. Á fyrstu tónleikum sveitarinnar var staddur Björgvin Ívar Baldursson frá Geimsteini og reif hann þá beint í upptökuheimili Geimsteins í upptökur. Útkoman heillaði alla þar á bæ svo ekkert annað kom til greina en að gefa plötuna út undir merki Geimsteins útgáfunnar.
Þetta verða engir venjulegir Valdimar tónleikar, því ekkert verður til sparað í að gera tónleikana sem glæsilegasta. Með hljómsveitinni mun leika sérskipuð tíu manna blásara- og ásláttarsveit.
Miðaverð er 1500 krónur og verður platan á tilboðsverði á staðnum á aðeins 2000 krónur.
Húsið opnar klukkan 20:00 og hefjast tónleikarnir klukkan 21:00.
Miðasala á Miði.is: http://midi.is/tonleikar/1/6270
Einnig verður hægt að kaupa miða á staðnum.
Hægt er að hlusta á Undraland í heild sinni á Gogoyoko:http://www.gogoyoko.com/#/album/Undraland
Úr plötudómum:
,,[Platan er] iðandi af hreinni sköpunargleði. Tónlistin er tilfinningaríkt popprokk með djasskeim og Radiohead-blæbrigðum. Söngurinn er til fyrirmyndar, hljóðfæraleikur góður og blásturinn kemur skemmtilega inn. Virkilega vel að verki staðið hjá piltum.”
– Arnar Eggert Thoroddsen. Morgunblaðið. 5. nóv. 2010.
,, […] frábær lög sem verðskulda mikið lof. Nægir þar að nefna Hverjum degi nægir sín þjáning og svo Yfirgefinn, þétt og flott lag með glæsilegri bassalínu. […] Allur tónlistarflutningur er til fyrirmyndar. […] Flott frumraun hjá hljómsveitinni Valdimar sem lætur vonandi meira að sér kveða í nánustu framtíð.”
– Freyr Gígja Gunnarsson. Fréttablaðið. 15. nóv. 2010.