TÓNLEIKAR Í KVÖLD KL. 20:00 – STÓRSVEITIN MUKKALÓ OG JÚNÍUS MEYVANT
Júníus Meyvant er ungt söngvaskáld úr Vestmanneyjum. Hann hefur áður spilað með rokksveitinni Jack London, sem hefur ferðast víða um veröldina (líkt og samnefndur rithöfundur). Nú verður Júníus hinsvegar á rólegri nótum en áður, með kassagítarinn að vopni. Tónlistina mætti kalla blúsað kassagítarpopp, en með ýmsum bragðbætiefnum þó.
Stórsveit Mukkaló er ný 7 manna sveit úr Reykjavik sem spilar lágstemmt þjóðlagaskotið jaðarpopp í anda tónlistarmanna á borð við Bright Eyes, Noah and the Whale og Sufjan Stevens. Mukkaló málar sína björtu hljóðmynd með kassagítörum, trommum, fiðlum, harmonikku og sílófón. Textarnir eru ýmist á ensku eða íslensku, en eiga það sameiginlegt að fjalla á einlægan hátt um ástina, lífið og æðri máttarvöld.