TÓNLEIKAR Á VETRARHÁTÍÐ, FIMMTUDAGINN 9. FEBRÚAR KL. 20
Ljósið í myrkrinu!
Fríkirkjan í Reykjavík
Fríkirkjuvegur 5
Kl. 20:00 – 21:00
Enn einu sinni mun þessi einstaklega góði og fallegi kór veita okkur af gnægtarbrunni sínum og flytja fyrir okkur tónlist, bæði af trúarlegum toga og veraldlegum.
Þetta einstaklega hæfileikaríka fólk mun bæði syngja og leika á ýmiskonar hljóðfæri, flytja einsöng og einleik en umfram allt verður þetta gleðileikur hinn mesti.
Aðal píanóleikari tónleikanna og útsetjari er engin önnur en snillingurinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir og stjórnandi kórsins er hin óviðjafnanlega Anna Sigríður Helgadóttir sem hugsanlega mun auðga okkur með sinni hljómríku og fögru einsöngsrödd…. Hver veit!