
Það er draumur að vera með dáta – Hádegistónleikar miðvikudaginn 21.maí kl.12
Síðustu hádegistónleikar vetrarins verða að þessu sinni á miðvikudegi, 21. maí næstkomandi.
Flutt verða amerísk sönglög, þjóðlög og söngleikjalög.
Flytjendur eru Solveig Óskarsdóttir, sópran, Gunnlaugur Bjarnason, barítón og Anna Þórhildur Gunnarsdóttir, píanóleikari.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.