Sveiflan – hádegistónleikar fimmtudaginn 18. febrúar kl. 12
Í Fríkirkjunni, næstkomandi fimmtudag munu hljóma léttir swingtónar í hádeginu.
Lilja Eggertsdóttir söngkona flytur mjúkar jazzballöður ásamt 7 manna, swing hljómsveit.
Tónlist sem léttir lund og kemur öllum í gott skap 🙂
Hljómsveit:
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Gunnar Gunnarsson, píanó
Þorgrímur Jónsson, kontrabassi
Scott McLemore, trommur
Nútímamenn: Gísli Magna, söngur, Hafsteinn Þórólfsson, söngur og Hlöðver Sigurðsson, söngur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)
Sjáumst í swingandi sveiflu!
Efnisskrá:
What a difference a day makes
Someone to watch over me
Moonlight serenade
Young at heart
Have I told you lately
Nevertheless
I wish you love
I’ll be seeing you
Hér má sjá viðburðinn á facebook: