Stjörnubjart, hádegistónleikar fimmtudaginn 3. desember kl. 12

Fimmtudaginn 3. desember verða flutt lög af plötunni Stjörnubjart, á hádegistónleikum í Fríkirkjunni.
Flytjendur eru Ágústa Sigrún Ágústsdóttir, söngkona, Sváfnir Sigurðarson, gítar og söngur og Haraldur V. Sveinbjörnsson, píanó og söngur.

Tríóið Stjörnubjart flytur hugljúfa skammdegistónlist sem er lágstemmd, klædd í snjó við yl frá kertaljósi. Stemmningin er tær, náin, persónuleg og tímalaus og veturinn spilar stórt hlutverk.
Það örlar á þjóðlaga- og sveitastíl sem og norrænum áhrifum með afturhvarfi til gamla tímans. Lögin koma víða að. Þar eru nokkur þjóðlög, íslenskar perlur, sálmalög, Gustav Holst og Jean Sibelius koma við sögu sem og sænskir höfundar á borð við Pererik Moraeus og þá Benny og Björn úr ABBA.
Öll lögin hafa fengið íslenskan texta. Ennfremur kynnir Stjörnubjart til sögunnar þrjú ný íslensk lög eftir tónlistarmennina sem fram koma á tónleikunum.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
Tekið er við greiðslukortum og nýr geisladiskur Stjörnubjart verður til sölu.

Sjáumst í kósý hádegi!