Sonnettur Shakespears og suðræn sveifla. Sunnudaginn 4. maí kl. 17

Tónleikar í Fríkirkjunni við Tjörnina sunnudaginn 4. maí kl. 17:00
Aðgangur ókeypis

Sönghópur Fríkirkjunnar við Tjörnina syngur lög djasspíanistans Georges Shearings við sonnettur Shakespears og Misa criolla eftir Ariel Ramírez.
Einsöngvari á tónleikunum er Einar Clausen en hljóðfæraleikarar eru Gunnar Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Ásgeir Ásgeirsson og Jón Borgar Loftsson.

Sönghópurinn hefur nýlokið við upptökur á sönglögum Tómasar R. Einarssonar í útsetningum Gunnars Gunnarssonar og mun sá diskur koma út í haust.