Samleið með Fúsa, hádegistónleikar fimmtudaginn 9. febrúar

Það verður létt stemning í hádeginu í Fríkirkjunni í Reykjavík, fimmtudaginn 9. febrúar.
Flutt verða nokkur vel valin lög eftir ástsæla tónskáldið Sigfús Halldórsson.
Flytjendur eru Særún Harðardóttir, sópran og Lilja Eggertsdóttir, píanó.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum).

Sjáumst í huggulegu hádegi!