ONE LIFE STAND – ný rödd kvenna -Hádegistónleikar fimmtudaginn 26.mars kl.12

 

FRESTAST VEGNA VEÐURS
Fimmtudaginn 26. mars verður fluttur ljóðaflokkurinn One Life Stand eftir Cheryl Frances-Hoad við ljóð Sophie Hannah. Ljóðaflokkurinn er einskonar nútíma útgáfa af Frauenliebe und -leben eftir R.Schumann.

Verkið One Life Stand var pantað af Cambridge Summer Music Festival 2011 og frumflutt af Jennifer Johnston og Joseph Middleton sama ár. Hugmyndin kviknaði þegar Jennifer Johnston kvartaði við Cheryl Frances-Hoadyfir úreltum texta Chamisso í Frauen-Liebe und Leben og bað tónskáldið um nútímalegri ljóðaflokk um líf kvenna. Eftir nokkra leit valdi Cheryl átta ljóð úr fjórum ljóðabókum Sophie Hannahtil að mynda þennan ljóðaflokk sem er nútímaleg innsýn inn í ýmiskonar senur í lífi kvenna. Tónskáldið sótti mikinn innblástur til tónlistar Schumanns – bæði hvað varðar hljómaharmóníu, mótífa og áferðar.

Flytjendur eru Hildigunnur Einarsdóttir, mezzosópran og Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari.

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.