Öll Kúba í einu píanói, hádegistónleikar fimmtudaginn 8. október kl. 12
Næsta fimmtudag býður tónleikaröðin Á ljúfum nótum upp á suðræna stemningu.
Þá verða flutt verk eftir X. Montsalvatge, John Corigliano og einnig bandarísk þjóðlög, m.a. Swing low.
Flytjendur eru Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir, píanóleikari
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálftíma.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)
Sjáumst í suðrænu hádegi!