Nýárs-óperugalagól – hádegistónleikar fimmtudaginn 17. janúar kl. 12

Á fyrstu tónleikum ársins, fimmtudaginn 17. janúar verða fluttir skemmtilegir dúettar og aríur úr ýmsum áttum í tónleikaröðinni “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni”.
Flytjendur eru Hallveig Rúnarsdóttir sópran, Jón Svavar Jósefsson barítón, og Hrönn Þráinsdóttir píanó.
Það eina sem Hallveigu, Jóni Svavari og Hrönn finnst skemmtilegra en að spila og syngja er að spila og syngja saman. Því ætla þau að henda í nokkrar laufléttar aríur og dúetta, með gamanmálum á milli, til þess að fagna nýju ári, þann 17. janúar næstkomandi. Við lofum raddflugeldum, suðurríkjasælu, frönskum herforingjum, ungverskum Greifynjum, heimskum smástelpum og útsmognum hefðarmönnum. Kannski kemur leynigestur!

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og eru hluti af tónleikaröðinni “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni”.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum).