Minningarguðsþjónusta sunnudaginn 31. maí kl. 14

Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa af völdum alnæmis hér á landi fer fram síðasta sunnudag í maí ár hvert. Kveikt er á kertum til að minnast þeirra
er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.

Athöfnin fer fram í Fríkirkjunni í Reykjavík sunnudaginn 31. maí kl. 14

Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Sr. Hjörtur Magni Jóhannesson, leiðir guðsþjónustuna.
Hugleiðingu flytur Vilhjálmur Vilhjálmsson, stjórnarmaður Hinsegin daga.
Formaður Hiv-Ísland, Jón Tryggvi Sveinsson, flytur ávarp.
Ritningarlestur verður í höndum félagsmanna.
Tónlist: Margrét J Pálmadóttir mætir með sína fögru söngfugla.
Söngkonan, Berglind Björk Jónasdóttir flytur nokkur lög.
Organisti í athöfninni er Gunnar Gunnarsson.

Boðið verður upp á veitingar í safnaðarheimili Fríkirkjunnar að athöfn lokinni.