Minningarguðsþjónusta sunnudaginn 15. maí kl. 14

Árleg minningarguðsþjónusta vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi hér á landi verður haldin, sunnudaginn 15. maí næstkomandi.
Kveikt verður á kertum til að minnast þeirra er látist hafa, einu kerti fyrir hvern einstakling sem við minnumst.
Að vanda fer athöfnin fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og hefst kl. 14.00.
Þess má geta að minningarstund þessi er alþjóðleg og heitir hún á ensku Candlelight Memorial Day.

Sr. Bryndís Valbjörnsdóttir leiðir guðsþjónustuna.
Formaður Hiv-Ísland, Gunnlaugur I. Grétarsson, flytur ávarp.
Hugleiðingu flytur Sr. Jakob Á. Hjálmarsson.
Ritningarlestur verður í höndum félagsmanna.
Tónlist: Margrét J Pálmadóttir mætir fagran hóp söngfugla, Hljómsveitin Dúndur fréttir flytur nokkur lög, Valgerður Ólafsdóttir flytur tvö lög við undirleik Alberts Ingasonar.

Boðið verður uppá kaffiveitingar í Safnaðarheimili Fríkirkjunnar að lokinni messu.