LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, Miðvikudaginn 8. febrúar kl. 12:15

LJÁÐU OKKUR EYRA tónleikaröðin undir stjórn Gerrit Schuil eru alla MIÐVIKUDAGA kl.12:15
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.

Með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku lék fiðluleikarinn Guðný Guðmundsdóttir.

Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.

ÓKEYPIS AÐGANGUR – ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR