
LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, miðvikudaginn 3. apríl kl. 12:15
Listrænn stjórnandi er Gerrit Schuil.
Dagskrá tónleikanna er ekki auglýst fyrirfram, né flytjendur.
Flytjendur með Gerrit á síðustu hádegistónleikum voru
söngkonurnar Diddú og Sesselja Kristjánsdóttir.
Við bjóðum öllu því fólki sem leið á um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum,
að njóta með okkur tónlistarlegrar óvissuferðar með mörgu af okkar besta listafólki.
Athugið að aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 kr. og ekki er tekið við greiðslukortum.
Verið hjartanlega velkomin.