LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, Miðvikudaginn 22. febrúar kl. 12:15
LJÁÐU OKKUR EYRA tónleikaröðin undir stjórn Gerrit Schuil er alla MIÐVIKUDAGA kl.12:15
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.
Flytjandi með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku var sópran söngkonan Valdís Guðrún Gregory.
Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum,
að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.
ÓKEYPIS AÐGANGUR – ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR