LJÁÐU OKKUR EYRA, HÁDEGISTÓNLEIKAR, Miðvikudaginn 10. október kl. 12:15

Listrænn stjórnandi er Gerrit Schuil.
Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur.
Flytjandi með Gerrit á Hádegistónleikum síðustu viku var barítónsöngvarinn Ágúst Ólafsson.

Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.

Vinsamlegast athugið: Aðgangseyrir að tónleikunum er kr. 1.000,- og ekki er tekið við greiðslukortum.

 ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR