LJÁÐU OKKUR EYRA – Hádegistónleikar alla miðvikudaga kl. 12:15

Hin sívinsæla hádegistónleikaröð LJÁÐU OKKUR EYRA undir stjórn Gerrit Schuil eru alla miðvikudaga  kl.12:15

Dagskrá hverra tónleika er ekki auglýst fyrir fram né flytjendur. Hvort tveggja er hluti af þeirri uppgötvun sem bíður þeirra sem sjá ástæðu til að líta við í kirkjunni um hádegisbil og njóta þar framlags ágætustu tónlistarmanna Íslendinga – hljóðfæraleikara og söngvara.

Frá fyrstu tíð hefur það verið hlutverk tónlistarinnr að gleðja, næra og hugga, og sú gjöf hennar heldur sannarlega gildi sínu þótt annað hrynji. Fátt er eins dýrmætt á erfiðum tímum og að geta gengið í sjóð tónlistarinnar og sótt þangað auð sem orð ná ekki að lýsa.

Við bjóðum öllu því fólki, sem á leið um Fríkirkjuveginn í hádeginu á miðvikudögum, að líta við í kirkjunni og eiga þar stund með frábæru tónlistarfólki.

Ókeypis aðgangur