Lífið er lambagras, hádegistónleikar fimmtudaginn 17. mars kl. 12

Söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir, sem kalla sig 3Klassískar, koma fram á hádegistónleikum í tónleikaröðnni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni þann 17. mars næstkomandi, ásamt 2Prúðbúnum, þeim Bjarna Þór Jónatanssyni píanóleikara og Gunnari Hrafnssyni bassaleikara. Lífið er lambagras er yfirskrift tónleikanna en á efnisskránni verða lög við texta eftir þá Megas og Davíð Stefánsson m.a. í útsetningum Aðalheiðar Þorsteinsdóttur og Bjarna Þórs Jónatanssonar.

Söngkonurnar hafa sungið saman um árabil og komið fram víða um land. Minnisstæðir eru tónleikar í bragganum á Hólmavík þar sem allt ætlaði um koll að keyra þegar þær mættu með Megasi í júlímánuði fyrir nokkru. Þá hafa þær gefið út diska haldið fjölda tónleika og glatt áheyrendur með skemmtilegum og söng og líflegri. Ekki má gleyma öllum þeim nemendum og kórum sem þær hafa kennt og stýrt.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Aðgangseyrir er 1.500 kr. (ath. að ekki er tekið við greiðslukortum) Sjáumst í skemmtilegu hádegi!