KVÖLDMESSA, sunnudagskvöld 10. júní kl. 20

Kvöldið er fagurt
Kærleiksóður í Fríkirkjunni í Reykjavík,
sunnudagskvöld 10. júní, kl. 20.00. Lofum lífið með elsku til þess sem andar og grær, beinum huga okkar til fegurðar heimsins og syngjum saman
Séra Bryndís Valbjarnardóttir flytur hugleiðingu. Hinn dásamlegi Fríkirkjukór og Anna Sigga leiða sönginn við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Kvöldvökurnar hjá okkur eru einstakar, verið öll velkomin – það er gott að eiga samfélag saman.