Kvikmyndatónlist með auglýsingahléum, hádegistónleikar fimmtudaginn 26. nóvember kl. 12
Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Fimmtudaginn 26. nóvember verður flutt kvikmyndatónlist úr ýmsum áttum ásamt stuttum, þekktum auglýsingastefjum á hádegistónleikum í Fríkirkjunni.
Flytjendur eru Hulda Björk Garðarsdóttir sópran, Lilja Eggertsdóttir, píanóleikari, Ásgeir Ásgeirsson, gítarleikari og Gunnar Hrafnsson, kontrabassaleikari.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)
Sjáumst í fjörugu hádegi!