KK í Fríkirkjunni í Reykjavík á jóladag kl. 14

Það er svo sannarlega snjór núna og mun verða um þessi jól. Systkinin Ellen og KK flytja hér lagið Meiri snjó með Eyþóri Gunnarssyni sem var tekið upp í fyrra.
Á jóladag klukkan 14:00 verður KK hjá okkur í Fríkirkjunni í Reykjavík. Hann flytur nokkur lög og lætur hugann reika um andleg gildi, kærleika, umburðarlyndi, þolinmæði og góðvild.

Tónlist eftir Egil Ólafsson verður einnig flutt af tónlistarfólkinu okkar eins og undanfarin ár….

Sjá meira