Karl Henry – KALLI – með útgáfutónleika föstudagskvöldið 26. nóvember kl. 21:00

Kalli, ásamt hljómsveit, heldur útgáfutónleika til kynningar á sinni annari sólóplötu “The Last Train Home” sem var tekin upp í Nashville, Tennessee í Bandaríkjunum í byrjun sumars.
Fyrri sólóplata Kalla “While the City Sleeps” kom út á vegum Smekkleysu árið 2007 hér heima en á vegum One Little Indian víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
Smekkleysa gefur plötuna út og er hún nú fáanleg í öllum helstu hljómplötuverslunum.

…“Last Train Home” er unnin með upptökustjóranum Kurt Storey, en saman fengu þeir Kalli nokkra reynda tónlistarmenn frá Nashville. Á bassa leikur Bob Moore sem er lifandi goðsögn sem var meðal annars bassaleikari hjá Elvis Prestley í 11 ár ásamt því að leika á hinni frábæru plötu Bob Dylan, “Nashville Skyline”. Hann var hluti af hinu svo kallaða Nashville A-team sem var hópur úrvals tónlistarmanna sem átti hvað mestan þátt í að skapa hinn klassíska Nashville hljóm.
Bob hefur einnig unnið með tónlistarmönnum á borð við Jerry Lee Lewis, Reba McEntire, Kenny Rogers, Johnny Cash, Roy Orbison, Dolly Parton, Quincy Jones, Simon & Garfunkel og Patsy Cline svo fáir séu nefndir. Pedal steel gítarleikarinn Lloyd Green leikur einnig á plötunni en hann hefur spilað með mönnum eins og J.J. Cale og Paul McCartney, Jeff Taylor sér um harmonikkuleikinn en hann vinnur að staðaldri með Elvis Costello og trommarinn J.D. Blair sem er þekktastur fyrir trommuleik sinn með Shania Twain.

Á plötunni er m.a. að finna lögin „Nothing at All“ sem var sérstaklega samið fyrir kvikmyndina Órói sem er sýnd í kvikmyndahúsum um þessar mundir, og “Last Train Home”, en bæði lögin hafa undanfarið verið í spilun á útvarpsstöðvunum Rás 2, Bylgjunni og X-inu 977.