HELGIHALD UM JÓL OG ÁRAMÓT

Aðfangadagur 24. desember kl. 17
Aftansöngur á aðfangadagskvöldi
Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn við undirleik hljómsveitarinnar Möntru
undir stjórn Gunnars Gunnarssonar.
Þóra Einarsdóttir syngur einsöng.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Láru Ruthar Clausen.
Séra Dagur Fannar Magnússon leiðir stundina.

Aðfangadagur 24. desember kl. 20.45 á RÚV sjónvarp
Fjölmenning á jólum í Fríkirkjunni í Reykjavík
Sjónvarpsútsending á RÚV frá hátíðlegri stund tileinkuð fjölmenningu á jólum.

Jóladagur 25.desember kl. 14
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag
Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur af sínum fjölmörgu lögum og kryddar stundina með skemmtilegum sögum.
Sr. Hjörtur Magni  og Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni.

Sunnudagur 28.desember kl. 14
Guðsþjónusta
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Ferming og barn borið til skírnar.
Séra Hjörturt Magni leiðir stundina.

Gamlársdagur 31.desember kl. 16
Aftansöngur á gamlársdag
Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni, leiða safnaðarsöng.
Séra Dagur Fannar Magnússon leiðir stundina.

Verið öll hjartanlega velkomin!