Helgihald í Fríkirkjunni yfir páskahátíðina.
Fermingarmessa, skírdag 24. mars kl. 14
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Erni Arnarssyni, tónlistarmanni.
Fermingarbörn dagsins eru:
Anna María Kjeld
Vesturvör 13 e, 200 Kópavogur
Þórunn Arna Guðmundsdóttir
Háaleitisbraut 103, 108 Reykjavík.
Kvöldmessa, föstudaginn langa 25. mars kl. 20
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Erni Arnarssyni, tónlistarmanni.
Lesið verður úr Passíusálmum.
Hátíðarguðsþjónusta, páskadagsmorgun 27. mars kl. 9
Séra Hjörtur Magni Jóhannsson safnaðarprestur leiðir stundina.
Einar Clausen syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir almennan söng ásamt Gunnari Gunnarssyni organista og Þorgrími Jónssyni á kontrabassa.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Páskaegg og veitingar í safnaðarheimili að guðsþjónustu lokinni.
Verið öll hjartanlega velkomin.