HÁTÍÐARGUÐSÞJÓNUSTA og barnastarf sunnudaginn 21. nóvember kl. 11:00

ATH breyttan tíma

111 ára afmæli Fríkirkjunnar

Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Aðalheiður Þorsteinsdóttir organisti ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina.  Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá við hæfi. Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins og verður fjallað um hana.

Boðið verður upp á súpu og brauð í Safnaðarheimilinu á eftir.

Guðsþjónustinni verður útvarpað

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!