Hátíðarguðsþjónusta og barnastarf sunnudaginn 21. nóvember kl. 11:00
ATH breyttan tíma
111 ára afmæli Fríkirkjunnar
Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Aðalheiður Þorsteinsdóttir organisti ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Hjörtur Magni Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá við hæfi. Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins og verður fjallað um hana.
Boðið verður upp á súpu og brauð í Safnaðarheimilinu á eftir.
Guðsþjónustinni verður útvarpað
VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!