Hættulegur Händel, fimmtudaginn 21. janúar kl. 12

Gleðilegt ár!
Fyrstu tónleikar ársins í tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni verða fimmtudaginn 21. janúar.
Þá flytja Guja Sandholt, mezzosópran og Matthildur Anna Gísladóttir, píanóleikari tónlist eftir Händel.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er posi á staðnum)

Sjáumst í hættulegu hádegi!