Hádegistónleikaröðin “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni” fimmtudaginn 7. mars kl.12

Fimmtudaginn 7. mars verða flutt ljóð og dúettar Grieg og Sibelius á hádegistónleikum í Fríkirkjunni.
Flytjendur eru Kristín Einarsdóttir Mäntylä Mezzo sópran, Silja Elsabet Brynjarsdóttir Mezzo sópran og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Þeir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.