Hádegistónleikaröðin “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni” fimmtudaginn 23. mars kl. 12

Fimmtudaginn, 23. mars munu gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson og bassaleikarinn Ingibjörg Elsa Turchi leika lög af komandi plötu þeirra sem væntanleg er á þessu ári.

Þau kafa inn í heim rafgítarsins og rafbassans þar sem mörk hljóðfæranna eru teygð og sveigð með ýmsum aðferðum. Gæta má áhrifa úr ýmsum áttum svosem djassi, tilraunatónlist, minimalisma og rokki. Þau hafa bæði verið mjög virk á íslensku tónlistarsviði síðustu misserin, bæði með eigin verkefni og leikið með hinu ýmsu tónlistarfólki, þvert á stíla.

Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.