Hádegistónleikaröðin “Á ljúfum nótum” fimmtudaginn 9. mars kl.12

Draumur frá Istanbul
Á tónleikunum verður flutt klassísk tyrknesk tónlist kennd við Ottóman veldið,
Flytjendur eru Ásgeir Ásgeirsson, oud og Fædon Jóhannes Sinis, kanun og kemence

Þessi tónlistarhefð nær árhundruði aftur í tímann og voru tyrknesku tónskáldin oft innblástur fyrir vestrænu tónskáldin m.a. Mozart.
Tónlistarhefð þessi inniheldur framandi hljóðfæri og munu flytjendur leika á hefðbundin hljóðfæri í þessum stíl.
Ásgeir Ásgeirsson hefur á undanförnum árum sótt tíma á tyrkneskt oud hjá nokkrum af færustu oud leikurum veraldar m.a. Yurdal Tokca, Enver Mete Aslan, Zeynel Demirtas og Taxiarchis Georgoulis fyrstur íslenskra hljóðfæraleikara.
Fædon Jóhannes Sinis (Phaedon Sinis) er bandarískur/grískur meistari í þessum stíl og hefur numið þessa tónlist í yfir 20 ár, hann leikur á tyrkneska borðhörpu og tyrkneska hnéfiðlu. Hann er algjör hvalreki fyrir íslenskt tónlistarlif og er búsettur á Íslandi.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum