Hádegistónleikar í Fríkirkjunni fimmtudaginn 29. september kl.12

– Popp með djass-salti –

Margir kannast við youtube stjörnurnar í “Postmodern Jukebox” þar sem ný og gömul popplög fá nýjan búning, yfirleitt jazzbúning. Nú ætla þau Ingrid, Leifur og Gunnar að leika sér með þessa hugmynd og setja nokkur þekkt popp- og dægurlög í sínar eigin jazzútsetningar þar sem létt swing ræður för.

Flytjendur:
Ingrid Örk Kjartansdóttir, söngur
Leifur Gunnarsson, kontrabassi
Gunnar Hilmarsson, gítar

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í syngjandi sveiflu! 🙂