Hádegistónleikar fimmtudaginn 4.desember kl.12

Síðustu hádegistónleikarnir fyrir jól verða næsta fimmtudag, 4. desember.
Flutt verða verk fyrir tvö píanó eftir Johann Sebastian Bach, Witold Lutosławski, Piotr Tchaikovsky og Claude Debussy.
Flytjendur eru Anna Þórhildur og Ingibjörg Þorsteinsdóttir, píanóleikarar.

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.