Hádegistónleikar fimmtudaginn 24.apríl kl.12

Næsta fimmtudag, sumardaginn fyrsta verður fluttur ljóðaflokkurinn Dichterliebe (Ástir skáldsins) eftir Robert Schumann við ljóð Henrich Heine.
Flokkurinn er svokallaður “Liederkreis”, hann byrjar og endar á sama stefi —þ.e.a.s. hann líður í hringi.
Flytjendur eru Ellert Blær Guðjónsson, barítón og Hrönn Þráinsdóttir, píanóleikari.

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.