Hádegistónleikar fimmtudaginn 15.janúar kl.12
Gleðilegt ár!
Fyrstu hádegistónleikar ársins í Fríkirkjunni við tjörnina verða næsta fimmtudag, 15. janúar.
Á þeim tónleikum flytur málmblásturs kvintettinn Silfurbjöllurnar tónlist úr ýmsum áttum.
Silfurbjöllurnar er málmblásturs kvintett, skipaður Hönnuh O’Connor og Øyvind Lapin Larsen á trompeta, Önnu Sigurbjörnsdóttur á horn, Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur á básúnu og Ingibjörgu Azimu Guðlaugsdóttur á bassabásúnu. Hópurinn var stofnaður árið 2022 og hefur spilað við ýmis tækifæri, meðal annars í Hörpu, á vegum Reykjavíkurborgar og sem hluti af Tónleikaröðinni 15:15.
Kvintettinn frumflytur nýtt verk fyrir málmblásturs kvintett eftir Ingibjörgu Azimu, Sólarlag, sem er um 10 mínútur í lengd og í þremur köflum. Auk þess flytur hópurinn sígild verk fyrir málmblásturskvintett eftir Gabrielli Canzona, Ewald kvintett og Bach.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.