Hádegi um haust – hádegistónleikar, fimmtudaginn 24. október kl. 12

Í hádeginu næsta fimmtudag, 24. október verða flutt verk eftir Rachmaninoff, Brahms og Berlioz.
Flytjendur eru Elín Sigríður Jónsdóttir, sópran, Tinna Þorvalds Önnudóttir, mezzósópran og Jón Sigurðsson, píanóleikari.
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík og eru hluti af tónleikaröðinni “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni”.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum).

Sjáumst í skemmtilegu hádegi!