Guðsþjónusta sunnudaginn 23. janúar

 
Mannréttindi
Anna Sigríður Helgadóttir og Carl Möller tónlistarstjórar ásamt kór Fríkirkjunnar leiða tónlistina. Einar Bergmundur Arnbjörnsson prédikar um frelsi og trú. Bryndís Valbjarnardóttir þjónar fyrir altari.
 
Barnastarfið hefst í kirkjunni, síðan fara börnin upp í safnaðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu sem hafa skemmtilega dagskrá – föndur og leiki. Börnin fá afhenta dæmisögu dagsins sem er sagan Jesú læknar við Betsetalaug. Í samverunni er áhersla lögð á að Jesús er vinur allra, líka þeirra sem eiga enga vini og virðast vera einir í heiminum. Jesús vill alltaf vera með okkur. Guð svarar ekki alltaf bænum okkar á þann hátt sem við óskum, en hann svara þeim á sinn hátt.  

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN