Guðsþjónusta sunnudaginn 21. júní kl. 14

Fríkirkjan í Reykjavík hefur frá upphafi veitt stuðning og verið máttugt afl í baráttunni fyrir kvenréttindum og almennum mannréttindum.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari.
Sönghópurinn við Tjörnina leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.

Við vonumst sérstaklega eftir að sem flestar konur sjái sér fært að mæta.
Verið öll hjartanlega velkomin.