Guðsþjónusta, sunnudaginn 16. september kl. 14, Dagur Íslenskrar náttúru

Í guðsþjónustunni munu Gissur Páll Gissurarson ásamt Gunnari Gunnarssyni organista, frumflytja lag eftir Ómar Ragnarsson sem tileinkað er náttúru Íslands.
Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari og predikar ásamt Arnaldi Mána fermingarfræðara.
Fermingarbörn taka þátt þar sem þema dagsins er Sköpun og Ábyrgð okkar.
Kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, nýs organista Fríkirkjunnar.
Fjölskyldur fermingarbarna og aðrir ættingjar hvattir til að koma, taka þátt  og njóta samverunnar.

Verið öll hjartanlega velkomin.