Guðsþjónusta og barnastarf, sunnudaginn 12. febrúar kl. 14
Séra Hjörtur Magni predikar og þjónar fyrir altari.
Predikunarefni dagsins:
Heilbrigð sál í hraustum líkama, lifum lífinu án vímuefna.
Anna Sigga og kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur, orgelleikara.
Við hvetjum fermingarbörn og foreldra þeirra sérstaklega til að mæta
þar sem senn líður að fermingum.
Fermingarfræðsla fyrir fermingarbörn fer fram í safnaðarheimili Fríkirkjunnar kl. 11:30
Kaffiveitingar í safnaðarheimili að lokinni messu
Verið hjartanlega velkomin.