Guðsþjónusta, sunnudaginn 17. ágúst kl. 14

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson þjónar fyrir altari.
Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur flytur hugleiðingu.
Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista.

Við hvetjum verðandi fermingarbörn og fjölskyldur þeirra til að mæta þar sem guðsþjónustan markar lok undangenginnar fermingarfræðsluviku.

Messukaffi verður í safnaðarheimili að lokinni guðsþjónustu.

Verið öll hjartanlega velkomin.