Fjórði sunnudagur í aðventu – 19. desember

Kl. 14:00  Barna- og fjölskyldusamvera á aðventunni
Við kveikjum á fjórða kertinu í aðventukransinum sem nefnt er Englakertið.
Margrét Lilja og Ágústa Ebba verða með létta dagskrá fyrir börnin; lestur, söngur og sögur.
Barn verður borið til skírnar.
Prestur er séra Hjörtur Magni Jóhannsson.  Anna Sigga tónlistarstjóri leiðir tónlistina ásamt Aðalheiði Þorsteinsdóttur organista og Kór Fríkirkjunnar.
 
Kl. 17:00  Heilunarguðsþjónusta
Hin árlega heilunarguðsþjónusta í samvinnu Fríkirkjunnar í Reykjavík,
Sálarrannsóknarfélags Íslands og Kærleikssetursins.
Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir hugleiðslu.
Magnús Harðarson flytur ávarp.
Píanóleikari er Aðalheiður Þorsteinsdóttir.
Söngvari Anna Sigríður Helgadóttir.
Prestur er séra Bryndís Valbjarnardóttir

VERIÐ ÖLL HJARTANLEGA VELKOMIN!