Fjölskylduguðsþjónusta, sunnudaginn 17. nóvember kl. 14.

Arnaldur Máni Finnson, guðfræðingur, leiðir stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.

Þær Rósa Margrét og Rósmary, umsjónarmenn barnastarfsins, bjóða  börnunum með sér upp á kórloft eða í safnaðarheimilið þar sem farið verður í leiki, sungið og föndrað.

Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.
Verið öll hjartanlega velkomin.