Fjölskylduguðsþjónusta, sunnudaginn 16. mars kl. 14.

Séra Hjörtur Magni Jóhannsson, safnaðarprestur og Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur leiða stundina.
Fermingarbörn taka þátt.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Sólveigar Önnu Aradóttur.
Sönghópur Fríkirkjunnar í Reykjavík leiðir tónlistina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista.
Þær Rósa Margrét og Rósmary, umsjónarmenn barnastarfsins, bjóða börnunum með sér upp á kórloft eða í safnaðarheimilið þar sem farið verður í leiki, sungið og föndrað.
Aðstandendur fermingarbarna eru hvattir til að mæta og vera með börnum sínum í guðsþjónustunni.
Verið öll hjartanlega velkomin.