Er haustið kemur, hádegistónleikar fimmtudaginn 27. október kl. 12

Hádegistónleikaröðin Á ljúfum nótum.

Næstkomandi fimmtudag, 27. október verða flutt haustlög í hádeginu í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Yfirskrift tónleikanna er “Er haustið kemur” þar sem flutt verða haustlög, gömul og ný.
Flytjendur eru Sigríður Eyrún Friðriksdóttir söngkona og Karl Olgeirsson sem sér um hljóðfæraleik og söng.

Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 kr.
(ath. að ekki er tekið við greiðslukortum)

Sjáumst í huggulegu hádegi! 🙂