Endurreisn og suðrænir tónar – Hádegistónleikar fimmtudaginn 8. maí kl.12

Fimmtudaginn, 8. maí munu Ragnhildur Þórhallsdóttir, sópran, og Óskar Magnússon, gítarleikari, flytja tónlist úr ýmsum áttum á hádegistónleikum.
Flutt verður tónlist frá Endurreisnar tímabilinu en einnig munu óma suðrænir tónar.

Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni við Tjörnina og eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.