DJASSMESSA, sunnudagskvöld 10. nóvember kl. 20

Hugljúf kvöldstund með ljúfum djasstónum við
kertaljós og hugleiðingar séra Hjartar Magna.
Kvöldmessurnar í Fríkirkjunni eru með léttu yfirbragði
þar sem tónlistin leikur stórt hlutverk.

Sönghópur Fríkirkjunnar leiðir sönginn ásamt djasskvartet skipuðu þeim Ásgeiri Ásgeirssyni á gítar,Tómasi R. Einarssyni á kontrabassa, Matthíasi Hemstock, slagverksleikara og Gunnari Gunnarssyni á píanó.

Stundin er í umsjón sr. Hjartar Magna Jóhannssonar.

Við bjóðum alla hjartanlega velkomna.

Athugið:
Engin guðsþjónusta verður kl.14 þennan dag.