Bar’Org – Baritón og orgel – Hádegistónleikaröðin “Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni” fimmtudaginn 28. nóvember kl.12
Næsta fimmtudag, 28. Nóvember munu Gunnlaugur Bjarnason, baritón og Pétur Nói Stefánsson, orgelleikari flytja verk eftir Rossini, Jón Leifs, Schubert og fleiri á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Ath. ekki er tekið við greiðslukortum.